Konukot
Málsnúmer201911014
MálsaðiliRauði krossinn við Eyjafjörð
Tengiliður
Sent tilanna@akureyri.is ;gudrun@vestmannaeyjar.is ;margret@isafjordur.is ;Kristín Helga Magnúsdóttir ;rannveig@kopavogur.is ;greatsjofn@skagafjordur.is ;harpao@mos.is ;hildigunnur@gardabaer.is ;ragnheidur@arnesthing.is ;Helgah@fjallabyggð.is ;rakel.k.gudnadottir@fjardabyggd.is ;julias@egilsstadir.is ;svava@felagsmal.is ;hrefnarun@akranes.is ;sigridur@sudurnesjabaer.is ;thelma@grindavik.is ;vildis@borgarbyggd.is ;gudnyhildur@bolungarvik.is ;arnheidur@vesturbyggd.is ;asdis@felahun.is ;Eyrún Rafnsdóttir;erlab@hornafjordur.is
SendandiBrynhildur Jensdóttir
CC
Sent28.10.2019
Viðhengi
image003.gifimage002.pngimage001.gif

Sæl öll,

 

Brynhildur heiti ég og er forstöðukona Konukots. Ég hef á undanförnum vikum verið í sambandi við flest ykkar í þeim tilgangi á að koma upp tengiliðum við athvarfið Konukot.

Konukot, Rauða Kross úrræði, er rekið á þjónustusamningi við Reykjavíkurborg og óskar borgin eftir því að tilnefndir verði tengiliðir við neyðarathvörfin, Gistiskýlið og Konukot.  Tilgangur þessa er sá að tengiliðir sveitafélaganna og forstöðumenn Gistiskýlis og Konukots komi sér upp reglubundnu samstarfi, til að vinna að lausn á húsnæðisvanda sem og annarra vandamála tengdum félagslegum aðstæðum þeirra einstaklinga sem gista í neyðarathvörfum á vegum Reykjavíkurborgar.

Ég er í forsvari fyrir Konukot. Ég skila tölum mánaðarlega til Reykjavíkurborgar um þá einstaklinga sem hingað leita. Deildarstjórar hverrar þjónustumiðstöðva í RVK fá upplýsingar um nýtingu einstaklinga sem þau sinna og koma upplýsingum á þá ráðgjafa sem eru ábyrgir fyrir málum þeirra og/eða skipa félagsráðgjafa í mál sem þar vantar.  Ég myndi vilja gera það sama fyrir þá einstaklinga frá öðrum sveitafélögum sem nýta athvarfið Konukot.

Hópurinn sem hingað í athvarfið leitar er fjölbreyttur og samsetning hans mismunandi eftir dögum.

Sumar konur koma hingað einu sinni og við sjáum þær svo aldrei aftur. Sumar koma reglulega og aðrar eru hér svo dögum, vikum og mánuðum skiptir.  Það er mjög mismunandi hverjar aðstæður þeirra eru þegar hingað leita.  Stundum koma þær einar, stundum í félagskap annara kvenna sem hingað leita mikið, stundum aðstoðar lögregla þær hingað af því þær hafa ekki annan stað að fara á, stundum vantar þær gistingu þessa einu nótt, þær eru að koma úr eða fara í meðferðir eða hvað annað. Allar hafa þær þó ekki annan stað á að leita og alltaf er vera þeirra hér á þeirra forsemdum og vilja.

Þær konur sem hingað leita ítrekað eiga það þó flestar sameiginlegt að eiga við margþættan og mikinn vanda að stríða, félagslegan, geðræðan og/eða vímuefnavanda.

Með þessari tengingu vonast ég til að samstarf á milli Konukots og ykkar verði meira og betra, og að við náum í sameiningu að sinna þessum viðkvæma hóp okkar enn betur.

Einnig langar mig að bjóða ykkur sem vilja koma og hitta mig, setja andlit við nafnið, sjá athvarfið og aðstöðuna sem við bjóðum upp á hér, velkomin í heimsókn og fá þar af leiðandi betri sýn á heim gesta athvarfsins.

 

Með von um gott og gæfuríkt samstarf  –

 

 

 

 

rammi

 

Með kveðju | Best regards,

Brynhildur Jensdóttir

Forstöðukona Konukots

Director at Konukot

Logo Rauða krossins

 

 

Rauði krossinn á Íslandi | Icelandic Red Cross

Sími/Telephone: +354 570 4000, GSM: 766 5997

 

 

rammi